Hér er að finna hagnýtt efni fyrir stjórnendur og starfsfólk innan íþróttahéraða. Efninu er skipt upp í sjö mismunandi flokka. Upplýsingar um flokkana er að sjá hérna fyrir neðan.

ÍÞRÓTTAHÉRAÐ

Uppbygging

Á þessari síðu er fjallað um uppbyggingu íþróttahreyfingarinnar á Íslandi og hvernig starfið er skipulagt. Hér má finna upplýsingar um helstu einingar hreyfingarinnar og hlutverk þeirra.

Stjórnsýsla og lagagrunnur

Á þessari síðu er fjallað um stjórnsýslu og lagagrunn íþróttahreyfingarinnar. Hér má finna upplýsingar um þau lög, reglur og skipulag sem liggja til grundvallar starfsemi íþróttafélaga og samtaka innan hreyfingarinnar.

Fjármál og rekstur

Á þessari síðu er fjallað um fjármál og rekstur íþróttafélaga. Hér má finna upplýsingar og leiðbeiningar um bókhald, fjárreiður, skýrslugerð, ráðningarsamninga og möguleika á styrkjum og sjóðum innan íþróttahreyfingarinnar.

Félagsmálafræðsla

Á þessari síðu er að finna efni sem tengist fundarhaldi og félagsstörfum innan íþróttafélaga. Hér má finna leiðbeiningar um undirbúning og framkvæmd funda, hlutverk fundarstjóra og fundarritara, gátlista fyrir aðalfundi og annað efni sem styður við skipulagt og skilvirkt fundarhald.

Mannauður, mennig og samskipti

Á þessari síðu er fjallað um mannauð, menningu og samskipti innan íþróttafélaga. Hér má finna leiðbeiningar um hegðunarviðmið fyrir stjórnarfólk, verkferla tengda störfum sjálfboðaliða og upplýsingar um samskipti, kynningar- og markaðsmál.

Upplýsingatækni og stafrænir ferlar

Á þessari síðu er fjallað um upplýsingatækni og stafræna ferla í starfsemi íþróttafélaga og íþróttahéraða. Hér má finna ábendingar um uppbyggingu heimasíðna, tékklista fyrir stafræna upplýsingagjöf og leiðbeiningar um gagnavörslu.

Mót, viðburðir og verkefnastjórnun

Á þessari síðu er fjallað um skipulag og framkvæmd móta og viðburða innan íþróttahreyfingarinnar. Hér má finna leiðbeiningar um móta- og viðburðahald, sem og upplýsingar sem styðja við skipulagningu og verkefnastjórnun viðburða.