ÚTBREIÐSLA OG AUKIN ÞÁTTTAKA

HVATASJÓÐUR ÍÞRÓTTA-HREYFINGARINNAR

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er nýr sjóður á vegum ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi Mennta- og barnamálaráðuneytis. Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna í íþróttum með áherslu á þátttöku barna með fötlun, af tekjulægri heimilum og með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn.

ÁHERSLUATRIÐI

Hvatasjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og þátttöku allra barna. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fatlanir, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.

Í Hvatasjóðinn geta sótt íþróttahéruð ÍSÍ og UMFÍ, íþróttafélög og deildir innan ÍSÍ og UMFÍ, sérsambönd í samstarfi við Íþróttahéruð, félög eða deildir félaga.

Sjóðurinn veitir styrki til verkefna sem:

  • Auka útbreiðslu og þátttöku barna í íþróttum.
  • Efla þátttöku barna með fötlun.
  • Efla þátttöku barna frá tekjulægri heimilum.
  • Efla þátttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.


SÆKJA UM Í HVATASJÓÐ

Opið er fyrir umsóknir í sjóðinn til 15. mars 2026.

UMSÓKNARFERLI

Umsóknir eru sendar inn í gegnum rafræna gátt.

  1. Smelltu á hnappinn hér fyrir ofan til þess að opna umsóknargáttina. 
  2. Fylltu út rafrænt umsóknareyðublað.
  3. Sendu umsókn.

Í umsókn skal meðal annars tilgreina:

  • Lýsingu á verkefninu og markmiðum þess.
  • Rökstuðning fyrir áhrifum verkefnisins á viðkomandi svæði.
  • Tíma- og verkáætlun.
  • Fjárhagsáætlun verkefnisins.


Úthlutað er úr sjóðum að hámarki fjórum sinnum á ári.


Reglugerð og lokaskýrsla

Hér er hægt að kynna sér reglugerð sjóðsins og lokaskýrsluform. Styrkþegar eru beðnir um að senda lokaskýrslur á netfangið hvatasjodur@siu.is


Stjórn Hvatasjóðs

Sjóðsstjórn er skipuð fimm einstaklingum. Eftirfarandi einstaklingar skipta núverandi stjórn: 

  • Óskar Þór Ármannsson, Mennta- og Barnamálaráðuneytið.  
  • Gunnar Bragason og Þórey Edda Elísdóttir, ÍSÍ.
  • Guðmundur G. Sigurbergsson og Ragnheiður Högnadóttir, UMFÍ.


ÚTHLUTANIR ÚR SJÓÐNUM

  • 3. úthlutun 2025

    Alls barst 71 umsóknir. Styrktar voru 52 umsóknir. Heildarúthlutun er 27.800.000 kr.



    Skipt eftir verkefnum:


    • Tengd börnum af erlendum uppruna: 4 samþykktar.
    • Tengd börnum með fötlun: 21 samþykkt.
    • Tengd börnum af tekjulægri heimilum: 9 samþykktar.
    • Þvert á áhersluflokka verkefna: 18 samþykktar. 

    Skipt eftir landshlutum:


    • Höfuðborgarsvæðið: 17 samþykktar: 9,7 m.kr.
    • Suðurnes: 6 samþykktar: 3,4 m.kr.
    • Vesturland: 8 samþykktar: 4,1 m.kr. 
    • Vestfirðir: 5 samþykktar: 3 m.kr.
    • Norðurland vestra: 2 samþykktar: 950 þús kr.
    • Norðurland eysta: 5 samþykktar: 2,4 m.kr. 
    • Austurland: 3 samþykktar: 2,7 m.kr. 
    • Suðurland: 6 samþykktar: 1,5 m.kr. 

     


    Sjá upplýsingar um öll verkefni sem hlutu styrk: Nóvember 2025.

  • 2. úthlutun 2025

    Alls bárust 91 umsóknir. Styrktar voru 72 umsóknir. Heildarúthlutun er 38.490.000 kr.


    Skipt eftir verkefnum:


    • Tengd börnum af erlendum uppruna: 10 samþykktar: 5.590.000 kr.
    • Tengd börnum með fötlun: 26 samþykktar: 15.000.000 kr.
    • Tengd börnum af tekjulægri heimilum: 5 samþykktar: 1.800.000 kr.
    • Þvert á áhersluflokka verkefna: 31 samþykktar: 16.100.000 k

    Skipt eftir landshlutum:


    • Höfuðborgarsvæðið: 32 samþykktar: 17.990.000 kr.
    • Suðurnes: 3 samþykktar: 1.750.000 kr.
    • Vesturland: 9 samþykktar: 4.550.000 kr
    • Vestfirðir: 1 samþykkt: 300.000 kr.
    • Norðurland vestra: 4 samþykktar: 850.000 kr.
    • Norðurland eysta: 4 samþykktar: 2.000.000 kr.
    • Austurland: 8 samþykktar: 5.500.000 kr.
    • Suðurland: 11 samþykktar: 5.550.000 kr.

     


    Sjá upplýsingar um öll verkefni sem hlutu styrk: Júní 2025.

  • 1. úthlutun 2025

    Alls bárust 49 umsóknir. Styrktar voru 30 umsóknir. Heildarúthlutun er 20,300.000 kr.


    Skipt eftir verkefnum:


    • Tengd börnum af erlendum uppruna: 8 samþykktar: 6.100.000 kr. 
    • Tengd börnum með fötlun: 11 samþykktar: 7.800.000 kr.
    • Tengd börnum af tekjulægri heimilum: 6 samþykktar: 3.700.000 kr.
    • Þvert á áhersluflokka verkefna: 5 samþykktar: 2.700.000 kr. 

    Skipt eftir landshlutum:

    • Höfuðborgarsvæðið: 7 samþykktar: 4.050.000 kr.
    • Suðurnes: 3 samþykktar: 3.500.000 kr.
    • Vesturland: 7 samþykktar: 4.250.000 kr.
    • Vestfirðir: 2 samþykktar: 1.150.000 kr.
    • Norðurland vestra: 1 samþykkt: 400.000 kr.
    • Norðurland eysta: 6 samþykktar: 3.200.000 kr.
    • Austurland: 2 samþykktar: 1.500.000 kr.
    • Suðurland: 2 samþykktar: 2.250.000 kr.

     


    Sjá upplýsingar um öll verkefni sem hlutu styrk: Janúar 2025.