ÍSÍ og UMFÍ

Konur í íþróttum

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er haldinn 8. mars ár hver. Í tilefni dagsins hafa ÍSÍ og UMFÍ staðið fyrir viðburðum síðustu þrjú ár til þess að lyfta upp konum á öllum aldri innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar.


Konur í íþróttum er fræðsluþáttaröð um og fyrir íþróttakonur og er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík, KSÍ, UMFÍ og ÍSÍ. Verkefnið miðar að því að efla þekkingu á sértækum þáttum sem snerta íþróttakonur, með það að markmiði að bæta frammistöðu, draga úr meiðslum og styðja við heilsu og velsæld þeirra á öllum aldri. 

Konur í íþróttum 2026

Verkefnið byggir á fjölbreyttu fræðsluefni, meðal annars stuttum myndböndum og lengri fyrirlestrum sem byggja á nýjustu vísindalegu þekkingu. Efnið er ætlað bæði ungum íþróttakonum og þeim sem styðja við þær, og tekur á lykilþáttum eins og hormóna- og kvenheilsu, tíðahring, álagi, meiðslum, andlegri heilsu og endurheimt.

Efnisflokkar myndbandanna eru:

  • Hormóna- og kvenheilsa
  • Tíðahringurinn
  • Grindabotn
  • Brjóstaheilsa
  • Svefn og andleg heilsa
  • Svefn
  • Átraskanir
  • Næring og líkamssamsetning
  • Beinheilsa
  • Álag og meiðsli
  • Álag
  • Heilahristingur
  • Öndun
  • Meðganga og endurkoma eftir fæðingu
  • Varðveisla á frjósemi



Ráðstefnan Konur í íþróttum – hvað segja vísindin? fór fram í mars 2025 í Háskólanum í Reykjavík. Viðfangsefni ráðstefnunnar var að varpa ljósi á stöðu og upplifun kvenna í íþróttum út frá nýjustu rannsóknum, þar sem ungir vísindamenn kynntu niðurstöður um meðal annars áhrif heilahristings, hormóna, kynþroskaskeiðs og álags á frammistöðu, heilsu og þátttöku íþróttakvenna. Sérstök áhersla var lögð á að auka þekkingu þjálfara, stjórnenda og iðkenda á þeim þáttum sem skipta máli til að styðja betur við konur í íþróttum og efla þátttöku þeirra og velferð.

Hvað segja vísindin? 2025

Efnistök ráðstefnunnar voru:

  • Með frammistöðu og heilsu að leiðarljósi: Sérhæfð fræðsla fyrir og um konur.
    Lára Hafliðadóttir.
  • Mælingar á líkamlegu atgervi yngri landsliða Íslands í boltagreinum: Framkvæmd og þróun.
    Hjalti Rúnar Oddsson.
  • Heilahristingur meðal íslenskra íþróttakvenna. Algengi, geðheilbrigði, taugasálfræðilegar afleiðingar og hormónatruflanir.
    Dr. Lára Eggertsdóttir og De. Hafrún Kristjánsdóttir.
  • Áhrif hormóna á  krossbandaslit: Hvað vitum við og hvað vitum við ekki?
    Sólveig Þórarinsdóttir.
  • Kynferðisleg áreitni í íslenskum íþróttum: Algegni og tengsl við geðheilsu og svefnvanda.
    Dr. Hafrún Kristjánsdóttir.
  • Skora - stúlkur, knattspyrna og rannsókn á atgervi.
    Dr. Rúna Sif Stefánsdóttir.
  • Mikilvægi svefns fyrir hámarks frammistöðu kvenna í íþróttum.
    Katrín Ýr Friðgeirsdóttir.

Þann 8. mars 2024 stóðu ÍSÍ og UMFÍ fyrir ráðstefnunni Konur og íþróttir, forysta og framtíð. Á ráðstefnunni voru konur í fyrsta sæti. Konur í stjórnum félaga, konur í dómgæslu og konur í þjálfun. Rætt var um helstu áskoranir sem konur í íþróttum standa frammi fyrir og þau tækifæri sem þeim bjóðast. Rætt var um mikilvægi þess að konur séu áberandi í forystu í íþróttahreyfingunni. Átti það við um þátttöku í stjórnum íþróttafélaga, í ráðum og nefndum, dómgæslu eða þjálfun á afreksstigi.

Konur og íþróttir, forysta og framtíð 2024

Erindi ráðstefnunnar

SETNINGARÁVARP

Olga Bjarnadóttir, 2. varaforseti ÍSÍ.

eru einhverjar áskoranir kvenna í forystu íþrótta?

Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands.

ferðalagið innan knattspyrnuheimsins

Klara Bjarnadóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri KSÍ.

tækifæri til að hafa áhrif

Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands.

að fóta sig í dómgæslu

Bríet Bragadóttir, aðþjóðlegur knattspyrnudómari.

Segðu já!

Erna Héðinsdóttir, dæmir á Ólympíuleikunum í París í lyftingum.

Mikilvægi dómgæslu í keppnisíþróttum

Hlín Bjarnadóttir, dæmir á Ólympíuleikunum í París í áhaldafimleikum.

Hvernig breytum við leiknum

Hulda Mýrdal, stofnandi Heimavallarins.

hvenær borðið þið eiginlega

Díana Guðjónsdóttir, handboltaþjálfari.

að þjálfa konur vs karla, er einhver munur?

Gunnar Páll Jóakimsson, frjálsíþróttaþjálfari.

Konur í þjálfun og þjálfun á konum í knattspyrnu

Lára Hafliðadóttir, Hagsmunasamtök kvenna í knattspyrnu.

áfram veginn! Ör samantekt

Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.

Pallborðsumræða

Til viðbótar við erindi fór fram pallborðsumræða. Ragnhildur Skúladóttir, sviðsstjóri fræðslu- og almenningíþróttasviðs ÍSÍ leiddi umræðuna. Gestir voru þau: Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri FSÍ, Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, Guðmunda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ÍA, Klara Bjartmarz, fyrrverandi framkvæmdastjóri KSÍ og Hulda Bjarnadóttir, formaður GSÍ.


Hægt er að horfa á pallborðið með því að smella HÉR.

Hægt er að horfa á alla ráðstefnuna með því að smella HÉR.