LÆRÐU HVERNIG VIÐ GETUM ÖLL STUÐLAÐ AÐ BETRI UPPLIFUN BARNA OG UNGMENNA Í ÍÞRÓTTUM

FRÆÐSLUMYNDBÖND


Hér má finna fræðslumyndbönd um málefni sem snerta íþrótta- og ungmennafélagshreyfinguna á fjölbreyttan hátt. Myndböndin eru hugsuð sem stuðningur við þjálfara, stjórnendur, foreldra og aðra sem vilja stuðla að jákvæðu, öruggu og farsælu umhverfi fyrir iðkendur. Með myndböndunum fylgja víða frekara fræðsluefni, verkfæri og hagnýtar leiðbeiningar.

VEÐMÁL


Hvert er hlutverk íþróttahreyfingarinnar þegar kemur að veðmálum?
Í myndbandinu fjallar Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri hjá Netvís, um áhrif veðmála, markaðssetningu þeirra og hvernig hún getur haft áhrif á viðhorf og hegðun ungs fólks. Rætt er um mikilvægi sjálfstæðrar ákvarðanatöku, ábyrgðar og þess að leita sér aðstoðar ef vandamál koma upp. Markmið myndbandsins er að auka vitund um áhrif veðmála og efla umræðu um ábyrgð og forvarnir innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar.

Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) og SÁÁ hafa jafnframt tekið saman vandað efni um þetta mikilvæga mál. Það styður við þessa umræðu og er þar að finna upplýsingar og stuðning. Við hvetjum fólk til að kynna sér efnið og deila því líka áfram. Sjá efnið hér.


HAGRÆÐING ÚRSLITA


Hvernig getum við verndað heiðarleika í íþróttum?

Hagræðing úrslita og ólögleg veðmál geta haft alvarleg áhrif á íþróttastarf og traustið sem það byggir á. Í þessu myndbandi fer Birgir Sverrisson, framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands, yfir mikilvægi þess að þjálfarar ræði reglulega við iðkendur um heiðarleika, ábyrgð og þau gildi sem íþróttir standa fyrir.

Fjallað er um hvernig skapa má öruggt umhverfi þar sem iðkendur treysta sér til að segja frá ef þeir verða fyrir óeðlilegum áhrifum eða fyrirspurnum tengdum hagræðingu úrslita. Einnig er farið yfir hvernig hægt er að tilkynna grunsamlega eða ólöglega starfsemi nafnlaust.


Myndbandið er ætlað þjálfurum og öðrum sem starfa með ungu íþróttafólki og er hugsað sem verkfæri til að hefja mikilvægt samtal um heiðarleika í íþróttum.