SAMSTARF ÍSÍ, UMFÍ OG MRN

SVÆÐISSTÖÐVAR ÍÞRÓTTAHÉRAÐA

ÍSÍ og UMFÍ hafa komið á fót átta svæðisstöðvum með stuðningi frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Samtökin hafa undirritað samning um eflingu íþróttastarfs á landsvísu með stofnun svæðisstöðva og Hvatasjóðs.


Svæðisstöðvunum er ætlað að styðja við íþróttahéruð landsins við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum. Jafnframt er markmiðið að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstakri áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.


Tillögur um stofnun svæðisstöðvanna voru samþykktar á þingi ÍSÍ vorið 2023 og á þingi UMFÍ haustið 2023.

Allt fyrir íþróttastarf á einum stað!


ÍÞRÓTTAFRAMBOÐ

Kynntu þér framboð á íþróttum um allt land á einum stað.

SVÆÐISSTÖÐVAR

Upplýsingar um tengiliði og tölfræði á þínu svæði.

VERKFÆRAKISTA

Leiðbeiningar, skjöl og hagnýt verkfæri fyrir daglegt starf.

HVATASJÓÐUR

Styrkir og tækifæri til að efla starfsemi hreyfingarinnar.

VERKEFNI

Upplýsingar um samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og annarra.

Umfang íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar


25

ÍÞRÓTTAHÉRUÐ

478

ÍÞRÓTTA- OG UNGMENNAFÉLÖG

161.000

IÐKANIR EINSTAKLINGA 2024