ÍÞRÓTTAFÉLAG

HEGÐUNARVIÐMIÐ

Stjórnar- og starfsfólk gegnir lykilhlutverki í að móta menningu og starfshætti innan íþróttafélaga. Þessi hegðunarviðmið lýsa þeim grunngildum og ábyrgð sem ætlast er til að þau fylgi í störfum sínum, með áherslu á virðingu, heiðarleika, ábyrgð og fyrirmyndarframkomu.

  • Stjórnar- og starfsfólk

    Komdu fram af virðingu  

    • Komdu eins fram við alla óháð aldri, kyni, kynþætti, kynhneigð, fötlun, stjórnmálaskoðunum, uppruna, trúarbrögðum eða félagslegri stöðu.   
    • Berðu virðingu fyrir skoðunum annarra.   

    Vertu heiðarleg(ur)  

    • Farðu eftir reglum íþróttahreyfingarinnar, haltu á lofti heiðarleika (fair play) og hvettu félagsmenn til að gera það líka. 
    • Stuðlaðu að jákvæðu og íþróttalegu umhverfi sem er laust við vímuefni og árangursbætandi lyf.   
    • Gættu fyllsta trúnaðar þar sem við á. 
    • Taktu aldrei þátt í veðmálum, fjárhættuspilum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði þar sem þú getur haft áhrif á úrslit. Veittu aldrei upplýsingar um íþróttir sem þú eða aðrir geta hagnast á. 
    • Forðastu eða tilkynntu fjárhagslega og persónulega hagsmunaárekstra.  

    Vertu félagsmönnum góð fyrirmynd    

    • Vertu ávallt til fyrirmyndar varðandi hegðun og framkomu, bæði innan félags og utan. 
    • Virtu lýðræðisreglur og gagnsæi við ákvarðanatöku og stjórnaðu samkvæmt reglum um ábyrga fjármálastjórn.  
    • Vertu sanngjarn, tillitssamur og heiðarlegur. 
    • Leggðu metnað í starfið og berðu ábyrgð á eigin hegðun. 
    • Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða öðrum hætti.  

    Berðu virðingu fyrir starfsemi félagsin

    • Þekktu lög og reglur félagsins. 
    • Stattu vörð um anda og gildi félagsins. 
    • Hafðu lýðræðisleg vinnubrögð í heiðri. 
    • Sýndu íþróttum virðingu og virtu reglur þeirra, venjur og siði. 
    • Sýndu öllum iðkendum, dómurum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og starfsfólki virðingu og stuðlaðu að því að iðkendur og félagsmenn geri slíkt hið sama. 
    • Þér ber skylda til að tilkynna til barnaverndaryfirvalda ef grunur leikur á að barn hafi verið vanrækt, því misþyrmt eða búi við aðstæður sem geta lagt heilsu þess og þroska í hættu. 

    Hegðunarviðmið (pdf). 

  • Þjálfarar

    Komdu fram af virðingu  

    • Komdu eins fram við alla iðkendur óháð aldri, kyni, kynþætti, kynhneigð, fötlun, stjórnmálaskoðunum, uppruna, trúarbrögðum eða félagslegri stöðu.   
    • Berðu virðingu fyrir einstaklingnum óháð getu eða metnaði til að ná árangri.
    • Berðu virðingu fyrir mótherjum, foreldrum/forsjáraðilum, dómurum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og öðru starfsfólki og stuðlaðu að því að iðkendur geri slíkt hið sama. 

    Vertu heiðarleg(ur)  

    • Farðu eftir reglum íþróttahreyfingarinnar, haltu á lofti heiðarleika (fair play) og hvettu félagsmenn til að gera það líka. 
    • Stuðlaðu að jákvæðu og íþróttalegu umhverfi sem er laust við vímuefni og árangursbætandi lyf.   
    • Gættu trúnaðar og sýndu aðgætni við meðferð og vörslu persónuupplýsinga. Undantekningu frá þagnarskyldu má einungis gera af brýnni nauðsyn og í samræmi við lagaboð.    
    • Taktu aldrei þátt í veðmálum, fjárhættuspilum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði þar sem þú getur haft áhrif á úrslit. Veittu aldrei upplýsingar um íþróttir sem þú eða aðrir geta hagnast á.

    Vertu góð fyrirmynd bæði innan sem utan vallar 

    • Allir iðkendur eiga skilið að fá athygli og jöfn tækifæri. 
    • Leggðu þig fram þannig að iðkendur fái sem mest út úr æfingunni. 
    • Vertu sanngjarn, tillitssamur og heiðarlegur. 
    • Ýttu undir heilbrigðan lífsstíl með góðu fordæmi. 

    Berðu virðingu fyrir þjálfarastarfinu 

    • Gerðu kröfur til þín varðandi málfar, hegðun, stundvísi, undirbúning og kennslu/þjálfun.   
    • Sýndu íþróttinni og félaginu virðingu og virtu reglur. 
    • Leggðu metnað þinn í starfið og leitaðu leiða til að auka þekkingu þína. 
    • Skipuleggðu starfið með tilliti til getu og þroska iðkenda. 
    • Vertu óhræddur við að leita eftir samstarfi við aðra þjálfara eða sérfræðinga. 
    • Taktu leiðtogahlutverk þitt alvarlega og nýttu stöðu þína á uppbyggilegan hátt.
    • Haltu iðkendum og aðstandendum upplýstum um þjálfunina. 

    Það sem er iðkandanum fyrir bestu 

    • Vertu vakandi og beittu þér gegn öllu ofbeldi: líkamlegu, kynferðislegu og andlegu. 
    • Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða með öðrum hætti. 
    • Forðastu líkamlega snertingu við iðkendur, nema þar sem hún er nauðsynlegur hluti þjálfunarinnar. 
    • Þér ber skylda til að tilkynna til barnaverndaryfirvalda ef grunur leikur á að barn hafi verið vanrækt, því misþyrmt eða búi við aðstæður sem geta lagt heilsu þess og þroska í hættu. 

    Ofbeldi er ekki liðið í íþróttahreyfingunni!

  • Iðkendur

    Komdu fram af virðingu  

    • Komdu eins fram við alla óháð aldri, kyni, kynþætti, kynhneigð, fötlun, stjórnmálaskoðunum, uppruna, trúarbrögðum eða félagslegri stöðu.  
    • Berðu virðingu fyrir einstaklingum óháð getu eða metnaði til að ná árangri.   
    • Sýndu íþróttinni virðingu og virtu reglur hennar, venjur og siði. 
    • Berðu virðingu fyrir andstæðingum, dómurum, foreldrum/forsjáraðilum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og öðru starfsfólki. 
    • Leggðu þitt að mörkum til að skapa jákvætt andrúmsloft sem er laust við líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi.  

    Vertu heiðarleg(ur)  

    • Farðu eftir reglum íþróttarinnar og komdu fram af fullkomnum heilindum og háttvísi gagnvart sjálfum þér og öðrum.  
    • Leggðu þitt að mörkum til að skapa jákvætt andrúmsloft og umhverfi sem er laust við vímuefni og árangursbætandi lyf.   
    • Taktu aldrei þátt í veðmálum, fjárhættuspilum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði þar sem þú getur haft áhrif á úrslit. Veittu aldrei upplýsingar um íþróttir sem þú eða aðrir geta hagnast á.

    Vertu góð fyrirmynd bæði innan sem utan vallar 

    • Berðu ábyrgð á eigin hegðun. 
    • Gerðu þitt besta þannig að þú fáir sem mest út úr æfingunni. 
    • Vertu sanngjarn, tillitssamur og heiðarlegur og hafðu það hugfast að þú ert fyrirmynd yngri iðkenda. 
    • Tileinkaðu þér heilbrigðan lífsstíl. 
    • Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða með öðrum hætti.

    Hegðunarviðmið (pdf). 

  • Foreldrar / Forsjáraðilar

    • Mundu að barnið þitt er í íþróttum sín vegna, en ekki þín vegna. 
    • Hvettu barnið til þátttöku í íþróttum, en ekki þvinga það. 
    • Hvettu öll börn, ekki bara þitt. 
    • Sýndu jákvæðni, líka þegar á móti blæs. 
    • Berðu virðingu fyrir öllum iðkendum, dómurum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og öðru starfsfólki. 
    • Berðu virðingu fyrir réttindum barna, hvert barn er einstakt. 
    • Mundu að þjálfarinn þjálfar en foreldrar hvetja. 
    • Upplýstu um stríðni, einelti eða áreitni. 
    • Sýndu starfi félagsins virðingu og vertu virkur þátttakandi. 
    • Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða öðrum hætti.  
    • Taktu aldrei þátt í veðmálum, fjárhættuspilum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði þar sem þú getur haft áhrif á úrslit. Veittu aldrei upplýsingar um íþróttir sem þú eða aðrir geta hagnast á. 
    • Þér ber að tilkynna til barnaverndaryfirvalda ef grunur leikur á að barn hafi verið vanrækt, því misþyrmt eða búi við aðstæður sem geta lagt heilsu þess og þroska í hættu.

    Hegðunarviðmið (pdf).

  • Góð ráð til foreldra

    Foreldrar skipta miklu máli í íþróttaiðkun barna sinna. Með hvatningu, jákvæðni og góðu fordæmi getið þið átt stóran þátt í að gera íþróttirnar að skemmtilegri og eftirminnilegri reynslu. Hér eru hagnýtar ábendingar um hvernig foreldrar geta stutt barnið sitt, sýnt þjálfurum, dómurum og öðrum iðkendum virðingu og stuðlað að jákvæðu umhverfi á æfingum og í keppni.

    • Fylgstu með æfingum ef félagið heimilar það og/eða með keppnum þegar þú getur. Sýnir þú fyrirmyndarhegðun virkar nærvera þín hvetjandi fyrir barnið, líka þegar það eldist.

    • Hrósið öllum iðkendum meðan á keppni stendur, ekki aðeins þínu barni. Gott er einnig að leggja áherslu á að hvetja liðið áfram, ekki eingöngu einstaklinga innan liðsins.
    • Hvetjið börnin bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs, ekki gagnrýna.

    • Berið virðingu fyrir störfum þjálfarans, ekki reyna að hafa áhrif á störf hans.

    • Dómarar í yngri flokkum eru oft á tíðum að stíga sín fyrstu skref inni á vellinum eins og iðkendur og eru að dæma í sjálfboðavinnu. Hafðu hugfast að gefa þeim svigrúm til að sinna sínu hlutverki og forðastu að gagnrýna ákvarðanir þeirra. Hafið áhrif og hvetjið börnin til þátttöku, íþróttir eiga að vera skemmtilegar.

    • Spyrjið hvort leikurinn/mótið eða æfingin hafi verið skemmtileg eða spennandi, úrslitin eru ekki alltaf aðalatriðið.

    • Hvetjið barnið ykkar til að vera góður og hvetjandi liðsfélagi og að það sé með jákvæðni í fararbroddi á æfingum og í keppni.

    • Sýnið starfi félagsins virðingu. Verið virk á foreldrafundum þar sem umræður fara fram um þjálfun og markmið félagsins, þar er ykkar vettvangur.

    • Mundu að það er barnið þitt sem er þátttakandi í íþróttum – ekki þú. Standið saman um fjáraflanir og félagsstarf þegar það á við.

    • Leggið ykkar af mörkum til að íþróttaiðkun barna ykkar verði eins öflugt forvarnarstarf og mögulegt er.

    Hafðu ávallt hugfast að:

    • Barnið þitt er í íþróttum á eigin forsendum.

    • Hvetja barnið þitt til þátttöku í íþróttum.

    • Það er þitt hlutverk að hvetja barnið þitt til að fara eftir og virða reglur íþróttanna og félagsins.

    • Þú ert fyrirmynd í því að taka ósigri af æðruleysi og sigri án hroka.

    • Virða störf þjálfarans, ekki reyna að hafa áhrif á störf hans.

    • Líta á dómarann sem leiðbeinanda iðkandans og virða ákvarðanir hans.

    • Styðja og hvetja öll börn og ungmenni – ekki bara þín eigin.

    • Vera jákvæður í meðbyr jafnt sem í mótbyr.

    • Gera aldrei grín að barni eða hrópa að því ef það gerir mistök.

    • Meta þátttöku sjálfboðaliða og starfsmanna félagsins sem leggja grunn að starfseminni.

    • Spyrja barnið hvort keppnin eða æfingin hafi verið skemmtileg en ekki eingöngu um úrslit.

ÍÞRÓTTAFÉLAG

SIÐAREGLUR

Siðareglur eru sameiginlegar reglur eða leiðbeiningar um hegðun. Líkja má siðreglum við leikreglur sem menn sjá að kostur er að fylgja til þess að tryggja eigin afkomu. Þótt þær komi ef til vill í veg fyrir að einstaklingur nái að fullnægja tiltekinni löngun á tilteknum tíma, þá þjóna siðareglur hagsmunum hvers og eins til lengri tíma litið. Að þessu leyti eru siðareglur eins og umferðarreglur, þær koma skikki á umferðina sem gerir einstaklingum kleift að komast leiða sinna þótt það geti skaðað stundarhagsmuni fólks að bíða á rauðu ljósi þegar mikið liggur við.

Engar einar reglur eru til sem gilda fyrir allt íþrótta- og æskulýðsstarf. Samkvæmt Íþróttalögum er ÍSÍ æðsti aðili frjálsrar íþróttastarfsemi á Íslandi. UMFÍ eru sjálfstæð félagasamtök á sviði íþrótta.

Siðareglur ÍSÍ (pdf). 

Siðareglur UMFÍ (vefsíða).