HLUTVERK OG SKYLDUR
ÍÞRÓTTAFÉLAG
Íþróttafélög gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Þau skapa vettvang fyrir reglulega hreyfingu og stuðla að bættri líkamlegri og andlegri heilsu. Jafnframt eiga þau að hvetja til aukinnar þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með því að tryggja fjölbreytni í íþróttaiðkun, veita öllum börnum tækifæri til að stunda íþróttir í samræmi við þarfir, getu og áhuga og skapa farveg fyrir þau sem vilja keppa og ná árangri á hærra getustigi.
Íþróttafélögum innan íþróttahreyfingarinnar ber að starfa í samræmi við lög og reglur ÍSÍ og UMFÍ. Sem aðilar að íþróttahreyfingunni bera þau ákveðnar skyldur en njóta jafnframt tiltekinna réttinda. Aðalstjórn sem fer með æðsta vald félagsins milli aðalfunda og ber ábyrgð á starfi félagsins og fjárhag þess.
Helstu verkefni
Helstu verkefni íþróttafélaga eru að:
- starfa í samræmi við lög, reglur og stefnur félagsins.
- tryggja að starfsemi félags sé í samræmi við lög, reglur og stefnur ÍSÍ, UMFÍ, viðkomandi íþróttahéraðs og sérsambands.
- halda úti æfingum og þátttöku í viðburðum og keppni.
- ráða þjálfara og annað starfsfólk og fá sjálfboðaliða til starfa fyrir félagið.
- tryggja að starfsfólk og sjálfboðaliðar hafi viðeigandi menntun og hæfni og uppfylli kröfur varðandi sakavottorð.
- raða niður æfingatímum.
- móta stefnu félagsins.
- halda árlega aðalfund.
- fjármagna starfsemi félagsins og færa bókhald.
- skila starfskýrslu í félagakerfi íþróttahreyfingarinnar ásamt félagatali og iðkendatali.
- skila ársskýrslu og ársreikningum til viðkomandi íþróttahéraðs.
- velja fulltrúa á ársþing viðkomandi íþróttahéraðs og sérsambanda.
Skyldur samkv. lögum ÍSÍ
Eftirfarandi skyldur hvíla á íþróttafélögum á grundvelli 7. gr. laga ÍSÍ:
- fylgja lögum og reglum ÍSÍ og innleiða þær breytingar sem gerðar eru á regluverki ÍSÍ í eigið regluverk, eftir því sem við á. Sé misræmi milli laga íþróttafélags og laga ÍSÍ ganga lög ÍSÍ framar.
- starfa í samræmi við markmið og stefnur ÍSÍ.
- tryggja að allir sem taka þátt í starfi félagsins eða koma fram fyrir hönd þess, þar með talið iðkendur, starfsmenn, sjálfboðaliðar og aðrir fulltrúar, starfi í samræmi við lög, reglur, siðareglur og hegðunarviðmið ÍSÍ og viðeigandi sambandsaðila. Gera skal nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að þeir sem starfa á þeirra vegum séu upplýstir um framangreindar reglur og viðmið og þeim sé fylgt í hvívetna.
- viðhafa góða stjórnarhætti.
- hlíta alþjóðalyfjareglunum og veita ÍSÍ og Lyfjaeftirliti Íslands fullt samstarf og aðstoð í verkefnum er varða framkvæmd lyfjaeftirlits.
- félögum sem sinna börnum og ungmennum undir 18 ára aldri er óheimilt að ráða til starfa einstaklinga sem hlotið hafa refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla, 211. gr. eða 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Sama gildir um þá sem hlotið hafa refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Ákvæði þetta nær einnig til þeirra sem falin er umsjón með börnum og ungmennum undir 18 ára aldri á grundvelli sjálfboðaliðastarfs, sbr. lög nr. 64/1998.
- afla sakavottorðs frá einstaklingum sem til stendur að ráða til starfa hjá félaginu og eiga að sinna börnum og ungmennum undir 18 ára aldri.
Félögum er jafnfram skylt
Félögum er jafnframt skylt að:
- vera skráður lögaðili og skrá raunverulega eigendur hjá Skattinum.
- tryggja að rekstur félags sé einskorðaður við hagsmuni þess og þeirrar starfsemi sem tengist íþróttaiðkun og sé ekki í hagnaðarskyni.
- tryggja að félag sé óháð erlendum samtökum um allt annað en alþjóðaíþróttareglur.
- tilkynna viðkomandi íþróttahéruðum og sérsamböndum þegar ný íþrótt er iðkuð innan félags og hvort stofnuð er um hana sérstök deild.
- tryggja að lög félags samræmist lögum ÍSÍ og uppfylli kröfur gr. 5.7 í lögum ÍSÍ.
Hlutverk aðalstjórnar íþróttafélags
Aðalfundur fer með æðsta vald í félagi en aðalstjórn er falið það milli aðalfunda og ber því ábyrgð á starfi og fjárhag félagsins í heild. Aðalstjórn er kjörin á aðalfundi og vinnur að hagsmunum félagsins í umboði félagsmanna. Í lögum félags kemur fram hvernig stjórn er skipuð og í sumum tilfellum hvaða hlutverkum ólík embætti innan stjórnar gegna. Meginhlutverk stjórnar er að stýra starfsemi félagsins í samræmi við vilja félagsmanna eins og fram kemur í lögum félags, fundarsamþykktum, samþykktri stefnu og markmiðum þess. Þá skal leitast við að byggja upp og viðhalda heilbrigðum félagsanda í félaginu. Mikilvægt er að stjórnarmenn séu vel upplýstir um starfsemi félagins, lög, markmið og fjárhag þess. Þeim ber að vera meðvitaðir um hlutverk sitt og taka ákvarðanir á upplýstan hátt með hag félagsins að leiðarljósi.
Dæmi um verkefni stjórnar
Verkefni stjórnar eru margvísleg. Sum eru lögbundin í lögum félagsins, lögum ÍSÍ eða viðkomandi íþróttahéraðs/héraðssambands/íþróttabandalags á meðan önnur má leiða af eðli starfseminnar.
Hér er að sjá dæmi um verkefni stjórnar.
Stefnumótun og markmiðasetning
- Setja stefnu fyrir félagið. Skilgreina framtíðarsýn, gildi og markmið.
- Þróa langtíma - og skammtímaáætlanir. Hvernig ætlar félagið að þróa íþróttastarf sitt, bæta aðstöðu og auka þátttöku.
- Tryggja að starfsemi félagsins sé í samræmi við tilgang þess.
Fjármálastjórnun
- Eftirlit með fjármálum. Fylgjast með fjárhagsstöðu félagsins, samþykkja fjárhagsáætlanir og fylgjast með að þær séu haldnar.
- Öflun styrkja og fjármögnun.
Eftirlit með starfsemi félagsins
- Samstarf við framkvæmdastjóra og starfsfólk.
- Eftirlit með íþróttastarfi. Stjórn hefur yfirumsjón með þjálfararáðningum, og þjálfunaráætlunum. Þá ber henni að tryggja að félagsmenn fái þjónustu í samræmi við stefnu félagsins.
Samskipti og vinnubrögð
- Samskipti við félagsmenn. Stjórn skal upplýsa félagsmenn um stefnumótun, fjárhagsstöðu og aðra mikilvæga þætti með reglulegum fundum eða með því að gera fundargerðir og ársskýrslur opinberar.
- Búa til jákvæða menningu innan félagsins.
- Lögmæti. Stjórn ber ábyrgð á að félagið fylgi lögum, reglugerðum og samþykktum þess.
Mannauðsstjórnun
- Ráða og styðja við starfsfólk. Stjórn ber ábyrgð á að ráða hæfa einstaklinga til starfa og veita þeim nauðsynlegan stuðning.
- Afla sjálfboðaliða.
Samskipti út á við
- Kynna starfsemi félagsins. Stjórn hefur það hlutverk að auka sýnileika félagsins í samfélaginu og byggja upp gott orðspor.
- Samskipti við samstarfsaðila. Eiga samskipti við styrktaraðila, opinbera aðila og önnur félög.
Öryggi og velferð
- Öryggi iðkenda og starfsmanna. Stjórn skal tryggja að félagið hafi ferla til að bregðast við slysum og öðrum atvikum.
- Barnavernd. Stjórn ber ábyrgð á að félagið star fi í samræmi við ákvæði laga um barnavernd og til séu staðar verkferlar varðandi tilkynningar til barnaverndar.
- Jafnrétti. Stjórn ber að tryggja jafnrétti og stuðla að fjölbreytileika í starfsemi félagsins.
Önnur verkefni
- Móttaka og afgreiðsla erinda.
- Leysa úr ágreiningsmálum sem upp koma milli aðila í félaginu. Æskilegt er að til staðar sé verkferill fyrir meðferð slíkra mála.
Lögbundin verkefni á grundvelli laga ÍSÍ
Hér er að sjá lögbundin verkefni félaga á grundvelli laga ÍSÍ.
- Félag skal hafa iðkun íþróttar sem samþykkt hefur verið af framkvæmdastjórn ÍSÍ á stefnuskrá sinni.
- Rekstur félagsins skal einskorðaður við hagsmuni þess og þeirrar starfsemi sem tengist iðkun íþrótta og ekki rekið í hagnaðarskyni.
- Lög félagsins mega ekki ganga í berhögg við lög og reglur ÍSÍ né hlutaðeigandi héraðssambands/íþróttabandlags.
- Breytingar á lögum félagsins skulu sendar ÍSÍ og héraðssambandi/íþróttabandalagi til staðfestingar og taka ekki gildi fyrr en staðfesting liggur fyrir.
- Félagsaðild skal vera öllum frjáls og ekki aðrar takmarkanir á þátttöku í félagsstarfi en þær sem ytri aðstæður, t.d. þjálfunaraðstæður, leyfa.
- Félagið skal halda skrár yfir félaga sína og iðkendur.
- Félagið skal vera óháð erlendum samtökum um allt annað en alþjóðaíþróttareglur enda gangi þær hvorki í berhögg við lög ÍSÍ né reglur Alþjóðaólympíunefndarinnar, IOC.
- Félagið skal vera skráður lögaðili.
- Félagið skal tilkynna viðkomandi héraðssambandi/íþróttabandalagi og sérsambandi um stofnun nýrra deilda.
- Félagið skal skila starfsskýrslu til ÍSÍ fyrir 15. apríl árlega.
Eyðublöð
Réttindi og skyldur stjórnarmanna
- Stjórnarnarmönnum ber að mæta á alla boðaða fundi, nema lögmæt forföll komi í veg fyrir það.
- Stjórnarmaður er aðeins bundinn af landslögum, lögum félagsins og eigin sannfæringu í afstöðu sinni til einstakra mála. Honum ber að gegna störfum sínum af samviskusemi með hagsmuni félagsins að leiðarljósi.
- Stjórnarmaður skal hafa aðgang að þeim gögnum félagsins sem nauðsynleg eru vegna ákvarðanatöku stjórnar um einstök málefni.
- Stjórnarmaður á rétt á að athugasemdir og afstaða hans til einstakra mála sé sérstaklega bókuð í fundargerð.
- Aðalstjórn félags ber sameiginlega ábyrgð á starfsemi félagsins gagnvart félagsmönnum. Einstakir stjórnarmenn bera ekki fjárhagslega ábyrgð á skuldbindingum félagsins nema þeir gangist í persónulega ábyrgð á þeim. Gerist stjórnarmenn hins vegar brotlegir gegn landslögum í stjórnarstörfum bera þeir ábyrgð á þeim skaðaverkum sem þeir kunna að valda. Þá getur stjórnarmaður orðið skaðabótaskyldur samkvæmt almennum reglum vegna tjóns sem hann veldur af gáleysi eða ásetingin í störfum sínum fyrir félagið.
Verkaskipting stjórnar
Stjórn íþróttafélags tekur sameiginlega ákvarðanir, en í stjórninni er að jafnaði ákveðin verkaskipting. Vel skilgreind hlutverk tryggja að félag sé rekið á skilvirkan og faglegan hátt. Skýr verkaskipting stuðlar að betri stjórnun og góðri framkvæmd á stefnu félagsins. Hver stjórn ákveður hvernig verkaskipting er en hér eru dæmi um hvernig skipta má verkum.
Formaður
- Boðar til stjórnarfundar og stjórnar þeim.
- Hefur eftirlit með starfsemi félagsins og að lögum þess og samþykktum sé fylgt.
- Er talsmaður félagsins útá við.
- Tryggir að stjórnarmenn og aðrir aðilar vinni saman í samræmi við markmið félagsins.
Varaformaður
- Er staðgengill formanns.
- Stuðningur við formann.
Ritari
- Ritar fundargerðir.
- Skjölun.
- Sér um samskipti við utanaðkomandi aðila, svo sem boðun funda og tilkynningar.
- Samstarf við formann við skipulagningu og undirbúning funda.
Gjaldkeri
- Hefur yfirumsjón og eftirlit með fjárreiðum félagsins.
- Sér um greiðslur og innheimtu.
- Veitir aðhald í fjármálum.
- Er í samskiptum við endurskoðanda/skoðunarmann.
- Svarar fyrirspurnum um reikninga og fjármál.
Meðstjórnandi
- Stuðningur við aðra stjórnarmenn.
- Ráðgjöf og þátttaka.
- Sinnir verkefnum sem honum eru sérstaklega falin.
Nýir stjórnarmenn
- Kynna sér lög og reglur félagsins og ÍSÍ.
- Vera upplýstur um tilgang og markmið félagsins.
- Kynna sér fjárhagsstöðu félagsins.
- Fái viðeigandi upplýsingar frá öðrum stjórnarmönnum um starfsemi félagsins.
- Fái upplýsingar um skyldur félagsins gagnvart sínu héraðssambandi/íþróttabandalagi og ÍSÍ.
Sakavottorð
Samkvæmt Íþróttalögum og Æskulýðslögum er óheimilt að ráða til starfa einstaklinga og/eða sjálfboðaliða sem hlotið hafa dóma gagnvart lögum um ávana- og fíkniefni (nr.65/1974) á síðastliðnum fimm árum eða gagnvart XXII. kafla (kynferðisbrot) almennra hegningarlaga (nr.19/1940).
Til að geta unnið samkvæmt þessum lagagreinum, hafa íþrótta- og æskulýðsfélög heimild til að óska eftir upplýsingum um þá aðila sem sækjast eftir því að verða starfsfólk eða sjálfboðaliðar, úr Sakaskrá ríkisins.
Mörg íþrótta- og æskulýðsfélög hafa óskað eftir því að fá upplýsingar um aðra dóma úr sakaskrá starfsfólks og sjálfboðaliða. Sakaskrá ríkisins hefur samþykkt að veita upplýsingar, með samþykki einstaklinga, hvort einstaklingur hafi hlotið dóm gegn XXIV. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 (manndráp, líkamsmeiðingar og brot gegn frjálsræði manna) og barnaverndarlögum nr. 80/2002, á síðastliðnum fimm árum.
Eyðublöð og leiðbeiningar er að finna inn á heimasíðu samskiptaráðgjafa. Þar er að finna leiðbeiningar um hvernig óskað er eftir upplýsingum úr sakaskrá, öll eyðublöð til útfyllinga ásamt dæmi um það hvernig slík umsókn lítur út.
Athygli er vakin á því að í dag geta félög óskað eftir upplýsingum á eigin vegum. Ekki þarf að hafa milligöngu í gegnum ÍSÍog/eða UMFÍ.
Hver eiga að skila þessu inn?
Allt starfsfólk sem félagið er með ráðningarsamband við og koma á einhvern hátt nálægt börnum og ungmennum í starfi félagsins. Það sama gildir um sjálfboðaliða sem vinna með börnum og ungmennum.
Hvernig á að gera þeta?
Hvert félag getur sent inn beiðni fyrir sig sjálft. Hvatt er til þess að nota eftirfarandi eyðublað (word).
Hér er að sjá leiðbeiningar um skref fyrir skref:
- Gerið skjalið að ykkar eigin með því að setja merki félags og upplýsingar þess á þar til gerða staði (Öllu skáletruðu þarf að breyta í merki og upplýsingar félags).
- Fáið viðkomandi starfsmann eða sjálfboðaliða til að skrifa undir eyðublaðið. Eyðublaðið er fjölnota. Á meðan samfellt ráðningarsamband er við aðilann má sækjast eftir þessum upplýsingum reglulega. Nauðsynlegt er að fletta aðilum upp við nýráðningu (áður en viðkomandi tekur til starfa) og góð vinnuregla er að endurtaka það síðan á 1-2 ára fresti. Mælt er með því að geyma undirrituðu eyðublöðin á traustum stað þar sem umsjónaraðili verksins hefur aðgang að.
- Umsjónarðaðili verksins þarf að fylla út skjalið Undirskrift ábyrgðaraðila félags og listi. Umsjónaraðili þarf að gera það skjal að sínu með því að setja merki félags og upplýsingar þess á þar til gerða staði (Öllu skáletruðu þarf að breyta í merki og upplýsingar félags). Umsjónaraðili kvittar síðan undir það skjal með nafni sínu og kennitölu sem staðfestingu fyrir hönd félagsins.
- Útbúa þarf síðan lista með nöfnum og kennitölum (það er sama skjal og í lið 3) þeirra sem verið er að afla upplýsinga um og samhliða listanum þarf að senda inn afrit af öllum eyðublöðunum sem starfsfólk og sjálfboðaliðar hafa skrifað undir.
- Senda þarf þessi skjöl rafrænt á: sigridur.laxness@saksoknari.is. Svar mun berast aftur tilbaka frá ríkissaksóknara.
- Ef svar berst um að starfsmaður eða sjálfboðaliði hafi fengið dóm vegna ofangreindra laga er félaginu óheimilt að hafa þann aðila í starfi eða sem sjálfboðaliða með börnum. Vinsamlegast leitið til samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs með málið í þeim tilfellum.
Eyðublöð

