STEFNUMÓTUN
Vinna við heildstæða stefnumótun fyrir íþróttahreyfinguna á Íslandi er nú hafin með það að markmiði að móta sameiginlega framtíðarsýn, skýra forgangsröðun og efla stoðir íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar til lengri tíma. Verkefnið tekur til allrar starfsemi, allt frá grasrótar- og æskulýðsstarfi til afreksíþrótta og lýðheilsu, og byggir á víðtæku samráði við aðila hreyfingarinnar um land allt.
Stefnumótunin er unnin í nánu samstarfi ÍSÍ og UMFÍ, þar sem skipaður hefur verið sameiginlegur stýrihópur með fulltrúum beggja samtaka. Lögð er rík áhersla á opið samtal og virka þátttöku, þannig að niðurstaðan endurspegli fjölbreyttar þarfir og sjónarmið innan íþróttahreyfingarinnar.
Ferlið felur í sér vinnustofur, greiningar og samtal við hagaðila, þar sem tryggt er að sem flestir geti lagt sitt af mörkum. Með þessu er stefnt að því að skapa sterkan grunn að áframhaldandi þróun og árangri íslensks íþróttastarfs til framtíðar.
Upplýsingar um tíma- og staðsetningu
Austurland
5. mars kl. 19:00 - 21:00
Sláturhúsið Egilsstöðum
Höfuðborgarsvæðið
9. mars kl. 15:00 - 17:00
Íþróttamiðstöðin Laugardal
Suðurnes
16. mars kl. 17:00 - 19.00
Íþróttahúsið Sunnubraut í Reykjanesbæ
Suðurland
17. mars 17:00 - 19:00
Stracta Hótel á Hellu
Norðurland vestra
23. mars kl. 17:00 - 19.00
Fjölbrautaskóli NV á Sauðárkróki
Norðurland eystra
24. mars kl. 16:30 - 18.30
Íþróttahöllin á Akureyri
Vesturland
8. apríl
kl. 18:00 - 20.00
Hótel Vesturland í Borgarnesi
Vestfirðir
11. apríl kl. 16:30 - 18:30
Menntaskólinn á Ísafirði
Höfuðborgarsvæðið
16. apríl kl. 17:00 - 19:00
Íþróttamiðstöðin Laugardal
Stýrihópur
Í stýrihópi stefnumótunarinnar sitja fulltrúar tilnefndir af stjórnum ÍSÍ og UMFÍ.
Þau eru:
Kári Mímisson, ÍSÍ
Willum Þór Þórsson, ÍSÍ
Halla Margrét Jónsdóttir, UMFÍ
Helgi Sigurður Haraldsson, UMFÍ



