RADDIR UNGS FÓLKS
Raddir ungs fólks var samtal um þátttöku í samfélaginu, upplifun í íþrótta- og æskulýðsstarfi og leiðir til framtíðar við forystufólk sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar. Fundirnir voru samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ, Svæðisstöðva íþróttahéraða og Ungmennaráðs UMFÍ og fóru fram um allt land vorið 2026.
Markmið samtalsins var að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks á aldrinum 15–25 ára og skapa vettvang til að koma sjónarmiðum á framfæri í samtali á jafningjagrundvelli við forsvarsfólk sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar.
Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsfyrirliði í handknattleik, heimspekingur og meistaranemi í íþróttasálfræði, stýrði fundunum í samstarfi við Ungmennaráð UMFÍ og svæðisfulltrúa íþróttahéraða á hverjum stað.
Allar niðurstöður fundanna voru nýttar í heildstæðri stefnumótun íþróttahreyfingarinnar, sem þá stóð yfir. Verkefnið var styrkt af Erasmus+ og byggði á þeirri sýn að aðstæður og áskoranir ungs fólks væru ólíkar eftir landshlutum.
Með því að halda fundi á átta stöðum um allt land var leitast við að umræðan endurspeglaði raunverulegar þarfir á hverjum stað.
Samantekt frá fundunum er væntanleg.



