Farþjálfarinn


Farþjálfarinn er verkefni sem ætlað er íþróttafélögum og svæðum sem vilja fá til sín þjálfara með þekkingu á ákveðnum íþróttagreinum, sem og þjálfurum sem veita farþjálfun. Markmiðið er að kynna viðkomandi íþróttagrein fyrir núverandi og nýjum iðkendum, auka fjölbreytni íþróttagreina og styðja við áframhaldandi og öflugt íþróttastarf. Þjálfunin getur verið í formi styttri námskeiða, t.d. helgarnámskeiða, eða fastrar þjálfunar einu sinni í viku. Fyrirkomulagið er samkomulagsatriði milli þjálfara og félags.

Viltu vera á skrá fyrir farþjálfara?

Þjálfarar sem hafa áhuga á að bjóða upp á farþjálfun geta skráð sig á eftirfarandi slóð eða haft samband við svæðisfulltrúa íþróttahéraða.

Ósk um farþjálfara

Íþróttafélög sem óska eftir lista yfir farþjálfara fylla út formið hér að neðan eða hafa samband við svæðisfulltrúa íþróttahéraða.

Frekari upplýsingar


Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Hansínu Þóru Gunnarsdóttur, sérfræðing hjá ÍSÍ. Netfang hennar er hansina@isi.is