ÍSÍ og UMFÍ
SAMSTARFS-VERKEFNI
ÍSÍ og UMFÍ hafa í gegnum tíðina unnið saman að fjölmörgum verkefnum sem hafa styrkt og eflt íþrótta- og ungmennafélagsstarf um land allt. Á þessari síðu er að finna upplýsingar um helstu sameiginlegu verkefni sambandanna.
VERKEFNI
SÁLRÆN OG FÉLAGSLEG FÆRNI
Verkefnið býður upp á verkfæri fyrir þjálfara, m.a fræðsluefni, greinar, dæmi úr starfi með æfingum og leiðum til að vinna markvisst með þætti eins og áhuga, markmiðasetningu, félagsfærni, sjálfstraust, leiðtogahæfni og einbeitingu í daglegri þjálfun.

VERKEFNI
SÁLFRÆÐILEG FÆRNIÞJÁLFUN
5C er færniþjálfun í íþróttum sem miðar að því að efla hugarfar, félagslega færni og líkamlega þjálfun. Hún byggir á rannsóknum og er notuð til að styðja iðkendur, þjálfara og foreldra í að takast á við kröfur íþrótta og daglegs lífs.

VERKEFNI
KONUR Í ÍÞRÓTTUM
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er haldinn 8. mars ár hver. Í tilefni dagsins hafa ÍSÍ og UMFÍ staðið fyrir viðburðum síðustu þrjú ár til þess að lyfta upp konum á öllum aldri innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar.

VERKEFNI
STEFNUMÓTUN
Vinna er hafin við heildstæða stefnumótun fyrir íþróttahreyfinguna á Íslandi, þar sem lögð er áhersla á sameiginlega sýn, skýra forgangsröðun og víðtækt samráð. Markmiðið er að styrkja hreyfinguna til framtíðar með virkri þátttöku úr öllum hennar röðum.

VERKEFNI
RADDIR UNGS FÓLKS
Raddir ungs fólks er samtal um þátttöku í samfélaginu, upplifun í íþrótta- og æskulýðsstarfi og leiðir til framtíðar við forystufólk sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar. Fundirnir eru samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ, Svæðisstöðva íþróttahéraða og Ungmennaráðs UMFÍ.



