SAMSTARF ÍSÍ, UMFÍ OG MRN

SVÆÐISTÖÐVAR ÍÞRÓTTAHÉRAÐA

ÍSÍ og UMFÍ komu á fót átta svæðisstöðvum með stuðningi frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu árið 2024. Svæðisstöðvunum er ætlað að styðja við íþróttahéruð landsins við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum auk þess að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstaka áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.


Samhliða samningi um svæðisstöðvarnar var Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar stofnaður.

MARKMIÐ SVÆÐISSTÖÐVA

Hlutverk svæðisstöðva er að þjónusta íþróttahéruðin í nærumhverfi sínu með samræmdum hætti. Horft er til þess að sterkari íþróttahéruð og svæðisstöðvar um allt land auki skilvirkni innan íþróttahreyfingarinnar og geri þeim kleift að takast á við núverandi og fyrirséð verkefni. Styrkja stefnumótandi vinnu og aðgerðir á landsvísu og stuðla þannig að farsæld barna og annarra sem nýta þjónustu hreyfingarinnar. 

Um markmið svæðisstöðva:

  • að vinna með íþróttahéruðum að eflingu íþróttastarfs um allt land.
  • að vinna að innleiðingu á stefnu og markmiðum íþróttahreyfingarinnar.
  • að vinna að innleiðingu á stefnu og markmiðum stjórnvalda í íþróttamálum.
  • auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttum og sérstaklega; fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.


ÁTTA SVÆÐISSTÖÐVAR UM LAND ALLT

ÍSÍ og UMFÍ komu á fót átta svæðisstöðvum með stuðningi frá mennta- og barnamálaráðuneytinu árið 2024. Svæðisstöðvunum er ætlað að styðja við íþróttahéruð landsins við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum auk þess að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstaka áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

HSÞ, ÍBA, UÍF, UMSE


Norðurland eystra

HSV, HSB, HHF, HSS


Vestfirðir

HSK, ÍBV, USVS


Suðurland

ÍRB, ÍS


Suðurnes

HSH, ÍA, UDN, UMSB


Vesturland

UÍA, USÚ


Austurland

ÍBH, ÍBR, UMSK


Höfuðborgarsvæðið

UMSS, USAH, USVH


Norðurland vestra

FRAMTÍÐARSÝN

Framtíðarsýn er að fyrirkomulagið skili sér í betri nýtingu á mannauði. Stuðningur við einstaka íþróttafélög verði meiri og þar af leiðandi verði þjónusta við iðkendur betri. Jafnframt er það framtíðarsýn að sem flestir hafi tækifæri til að stunda íþróttir á því sviði sem þeir kjósa, hvort heldur til ánægju, heilsubótar eða með afreksárangri að markmiði. 

AÐDRAGANDI

ÍSÍ og UMFÍ starfræktu vinnuhópa til að skoða stöðu íþróttahéraða í landinu. Alls eru íþróttahéruð landsins 25 um land allt, með ólika starfsemi og virkni. Úthlutun fjármagns frá lottó til íþróttahéraða og aðildarfélaga þeirra hefur verið mismunandi og reglur hjá ÍSÍ og UMFÍ ólíkar. Sameiginlegar nefndir samtakanna unnu tillögur varðandi samræmda skiptingu lottófjármuna sem stjórnir og nefndir samtakanna komu sér saman um. Hagsmunaaðilar um allt land, stórir sem smáir, komu að skipulaginu. Tekið var tillit til víðtækra sjónarmiða. Áhersla var að niðurstaðan trygði aukið fjármagn út á land, samræmdar reglur verði óháð aðild að samtökunum og sérstök áhersla var lögð á að uppfylla markmið samtakanna og stjórnvalda.