



SAMSTARF ÍSÍ, UMFÍ OG MRN
SVÆÐISTÖÐVAR ÍÞRÓTTAHÉRAÐA
ÍSÍ og UMFÍ hafa komið á fót átta svæðisstöðvum með stuðningi frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Samtökin hafa undirritað samning um eflingu íþróttastarfs á landsvísu með stofnun svæðisstöðva og Hvatasjóðs.
Svæðisstöðvunum er ætlað að styðja við íþróttahéruð landsins við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum. Jafnframt er markmiðið að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstakri áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Tillögur um stofnun svæðisstöðvanna voru samþykktar á þingi ÍSÍ vorið 2023 og á þingi UMFÍ haustið 2023.
MARKMIÐ SVÆÐISSTÖÐVA
Hlutverk svæðisstöðva er að þjónusta íþróttahéruðin í nærumhverfi sínu með samræmdum hætti. Horft er til þess að sterkari íþróttahéruð og svæðisstöðvar um allt land auki skilvirkni innan íþróttahreyfingarinnar og geri þeim kleift að takast á við núverandi og fyrirséð verkefni. Styrkja stefnumótandi vinnu og aðgerðir á landsvísu og stuðla þannig að farsæld barna og annarra sem nýta þjónustu hreyfingarinnar.
Um markmið svæðisstöðva:
- að vinna með íþróttahéruðum að eflingu íþróttastarfs um allt land.
- að vinna að innleiðingu á stefnu og markmiðum íþróttahreyfingarinnar.
- að vinna að innleiðingu á stefnu og markmiðum stjórnvalda í íþróttamálum.
- auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttum og sérstaklega; fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Allt sem þú þarft fyrir íþróttastarf á einum stað!
UMFANG ÍÞRÓTTA- OG UNGMENNAFÉLAGSHREYFINGARINNAR
25
ÍÞRÓTTAHÉRUÐ
478
ÍÞRÓTTA- OG UNGMENNAFÉLÖG
161.000
IÐKANIR EINSTAKLINGA 2024





