Samstarf ÍSÍ, UMFÍ og MRN
Svæðisstöðvar íþróttahéraða
Sterkari íþróttahreyfing – betri verkfæri.
Um verkefnið
ÍSÍ og UMFÍ hafa komið á fót átta svæðisstöðvum með stuðningi frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Svæðisstöðvunum er ætlað að styðja við íþróttahéruð landsins við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum.
Jafnframt er markmiðið að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi, með sérstakri áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Lesa meira →Verkefni
Samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og annarra.
Dagatal
Vertu með allar dagsetningar um verkefni og viðburði á hreinu.
SAMSTARF ÍSÍ, UMFÍ OG MRN
SVÆÐISSTÖÐVAR ÍÞRÓTTAHÉRAÐA
ÍSÍ og UMFÍ hafa komið á fót átta svæðisstöðvum með stuðningi frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Samtökin hafa undirritað samning um eflingu íþróttastarfs á landsvísu með stofnun svæðisstöðva og Hvatasjóðs.
Svæðisstöðvunum er ætlað að styðja við íþróttahéruð landsins við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum. Jafnframt er markmiðið að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstakri áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Tillögur um stofnun svæðisstöðvanna voru samþykktar á þingi ÍSÍ vorið 2023 og á þingi UMFÍ haustið 2023.
Allt fyrir íþróttastarf á einum stað!
Umfang íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar
25
ÍÞRÓTTAHÉRUÐ
478
ÍÞRÓTTA- OG UNGMENNAFÉLÖG
161.000
IÐKANIR EINSTAKLINGA 2024









