Svæðisstöð

Vestfirðir

Sveitarfélög:

7

Íbúar:

6.930

Íþróttafélög

29

Iðkendur/iðkanir:

1.882 / 2.613

Jóna Lind Kristjánsdóttir

Svæðisfulltrúi

jonalind@siu.is

869 3809

Aðsetur

Suðurgata 12, 400 Ísafirði

Páll Janus Þórðarson

Svæðisfulltrúi

pall@siu.is

866 8609

Aðsetur

Suðurgata 12, 400 Ísafirði

Héraðssamband Vestfirðinga

HSV var stofnað árið 2000 við sameiningu Íþróttabandalags Ísafjarðar og Héraðssambands Vestur-Ísfirðinga. Starfssvæði sambandsins er Ísafjarðarbær og Súðavíkurhreppur. HSV vinnur að eflingu íþrótta- og félagsstarfs, styður við aðildarfélög sín og stuðlar að samstarfi í íþróttamálum á norðanverðum Vestfjörðum.

Héraðssamband Bolungavíkur

HSB var stofnað árið 1982 og hefur Bolungarvík sem starfssvæði. Sambandið sameinar íþróttafélög í bænum og vinnur að því að efla íþrótta- og ungmennafélagsstarf á svæðinu. Meðal aðildarfélaga þess eru Ungmennafélag Bolungarvíkur og Golfklúbbur Bolungarvíkur. 

Héraðssamband Strandamanna

HSS var stofnað á Hólmavík árið 1944 og starfssvæði þess nær frá Bitrufirði norður í Árneshrepp. Sambandið styður við íþrótta- og ungmennafélagsstarf á Ströndum og vinnur að því að efla þátttöku og skapa tækifæri til íþróttaiðkunar í samfélögum svæðisins. Meðal aðildarfélaga eru Ungmennafélagið Geislinn, Ungmennafélagið Neisti og Skíðafélag Strandamanna.

Héraðssambandið Hrafna-Flóki

HHF starfar á sunnanverðum Vestfjörðum, á svæði Vesturbyggðar og Tálknafjarðar. Sambandið var endurvakið árið 1980 og hefur síðan unnið að eflingu íþrótta- og ungmennafélagsstarfs á svæðinu. Starfið nær til fjölbreyttra íþróttagreina og leggur áherslu á þátttöku, samvinnu og jákvætt umhverfi fyrir iðkendur á öllum aldri.

Íþróttaframboð á Vestfjörðum. Listinn er ekki tæmandi og ef þið viljið kynna ykkur frekar framboðið má hafa samband við fullrúa svæðisins.

Íþróttaframboð á Vestfjörðum