STYRKJADAGATAL ÍÞRÓTTA-HREYFINGARINNAR

Hér finnur þú yfirlit yfir styrki og styrkjamöguleika sem geta nýst íþróttafélögum, deildum og öðrum aðilum innan íþróttahreyfingarinnar. Dagatalið hjálpar þér að finna rétta styrkinn á réttum tíma og halda utan um umsóknarfresti.

Sjóvá veitir styrki til afmarkaðra verkefna sem hafa jákvæð og varanleg áhrif á samfélagið. Sérstök áhersla er á forvarnir, æskulýðsstarf, heilsu og hreyfingu, auk menningar og samfélagsábyrgðar. Umsóknir eru teknar við allt árið og úthlutað þrisvar sinnum á ári.

Krónan veitir samfélagsstyrki til verkefna sem stuðla að bættri lýðheilsu, hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl barna og ungmenna. Sérstök áhersla er á verkefni sem hafa jákvæð áhrif í nærsamfélaginu, bæði á landsbyggðinni og í þéttbýli.

Hvatasjóður ÍSÍ og UMFÍ styrkir verkefni sem auka þátttöku barna í íþróttum og stuðla að því að fleiri hafi tækifæri til þátttöku. Sérstök áhersla er á börn með fötlun, börn frá tekjulægri heimilum og börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Umsóknir eru teknar við allt að fjórum sinnum á ári.

Reykjavíkurborg veitir styrki til félagasamtaka, fyrirtækja og einstaklinga vegna starfsemi, verkefna og viðburða sem samræmast áherslum borgarinnar. Styrkirnir ná meðal annars til félags- og velferðarmála, menningarmála og almennra verkefna. Umsóknir eru rafrænar og metnar út frá markmiðum, ávinningi og framkvæmanleika verkefnisins.

Samfélagssjóður BYKO styrkir verkefni sem samræmast samfélagslegri ábyrgð fyrirtækisins, með áherslu á sjálfbærni og geðheilbrigði. Verkefni sem hafa jákvæð samfélagsleg áhrif og falla að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna geta komið til greina. Umsóknir eru teknar við samkvæmt auglýstum umsóknartímabilum.

Íþróttasjóður er opinber styrktarsjóður sem hefur það hlutverk að efla íþróttastarf í landinu. Sjóðurinn veitir meðal annars styrki til íþróttafélaga, sérsambanda og annarra verkefna sem stuðla að þróun og uppbyggingu íþrótta, þar á meðal til mannvirkja, búnaðar, fræðslu og íþróttastarfs.

Samfélagssjóður EFLU styrkir verkefni sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið og stuðla að uppbyggingu og þróun þess. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast umhverfi, samfélagi, nýsköpun og fræðslu. Styrkirnir geta nýst fjölbreyttum verkefnum um allt land.

Uppbyggingarsjóðir starfa í hverjum landshluta og styrkja verkefni sem stuðla að þróun og eflingu samfélagsins. Áhersla er meðal annars á nýsköpunarverkefni sem falla að sóknaráætlun viðkomandi landshluta. Skilyrði, styrkupphæðir og umsóknarfrestir geta verið mismunandi eftir landshlutum.

Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ styrkir verkefni sem efla félags- og íþróttastarf innan ungmennafélagshreyfingarinnar. Áhersla er meðal annars á fræðslu og forvarnir, þjálfara- og dómaranámskeið, þjálfun leiðbeinenda og sjálfboðaliða, auk nýsköpunar og samstarfsverkefna. Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári, 1. maí og 1. nóvember.

Samfélagssjóður Landsvirkjunar styrkir skilgreind verkefni og viðburði sem hafa breiða samfélagslega skírskotun og jákvæð áhrif á samfélagið. Áherslur sjóðsins ná meðal annars til forvarna og æskulýðsstarfs, heilsu og hreyfingar, menntunar, menningar og umhverfismála. Styrkir eru veittir allt að einni milljón króna.

Samfélagssjóður HS Orku styrkir afmörkuð verkefni og viðburði sem hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag, lífsgæði og mannlíf. Áherslur sjóðsins ná meðal annars til lýðheilsu, æskulýðsstarfs, fræðslu, umhverfismála, sjálfbærni og menningar. Umsóknir eru opnar fyrir verkefni um allt land.

UMFÍ veitir ungu fólki styrki til náms við lýðháskóla í Danmörku. Markmiðið er að gefa ungu fólki tækifæri til að víkka sjóndeildarhringinn, kynnast nýrri menningu og tungumáli, efla þekkingu og færni á áhugasviði og styrkja leiðtogahæfileika.

Umhverfissjóður UMFÍ styrkir umhverfisverkefni félaga innan ungmennafélagshreyfingarinnar. Áhersla er meðal annars á verkefni sem tengjast yngra fólki, auka tengsl við náttúru landsins og fela í sér nýjungar í umhverfisvernd og nýtingu.